Um Aðils

Aðils litli fæddist 26. mars 2006. Foreldrar hans eru Akýra og Jeltsín.

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Sorgarfrétt og hinsta kveðja.

03. janúar 2007 klukkan 00:05
 



Aðils litli er ekki lengur hjá okkur. Litli elskaði vinurinn kvaddi okkur á gamlárskvöld. Hann fékk eitrun, líkast til af því að naga jólatréð. Hann var fyrst áberandi slappur seint um kvöldið þann 30. og fórum við með hann á Dýraspítalann eldsnemma á gamlársdag þar sem hann fékk stera, vitamín og gerla fyrir þarmana. Hann dó um kl.  21 á leiðinni á spítalann aftur eftir að hafa snarversnað. Það er erfitt að trúa að svona geti gerst og svona hratt. Þó erfitt sé að setja þetta á blað getur það e.t.v. verið til varnaðar fyrir aðra hundaeigendur. Við gættum vel að öllum efnum og slysagildrum á heimilinu en höfðum ekki mjög miklar áhyggjur af jólatrénu - ekki var vatn á því og við reyndum að hindra nagið. Hann var hins vegar mjög spenntur og sólginn í það og sleit margar litlar greinar af frá því það var sett upp 22. des. Dýralæknirinn sagði þetta vera þekkta eitrun en við höfðum aðeins heyrt um eitrun ef hundar drykkju vatnið í fætinum vegna efna sem stundum eru sett á tré til að halda þeim lengur lifandi. Útilokað er að segja hvort þetta voru eiturefni eða hvort safinn var svona eitraður fyrir hann. Hann var ekki með hita og því var lifrarbólga útilokuð en önnur einkenni voru svipuð.

Við þökkum þeim sem hafa fylgst með Aðils litla á þessari síðu. Á heimilinu ríkir nú mikil sorg. Hundurinn var miðpunktur í heimilishaldinu og sterkur persónuleiki. Erfitt er að sætta sig við að fallegi gleðigjafinn og prakkarinn okkar sé horfinn svona ungur. Það eina sem við eigum eru yndislegu minningarnar um hann.  

María og fjölskylda.  
María A.
Sigrún, Atli, Ágúst og Axel
 
Já þetta er mikill söknuður, og við finnum líka vel fyrir honum hér hjá okkur. Þessi fáu skipti sem við hittum hann, birti til hjá okkur og sérstaklega hjá ungu drengjunum.

Við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur,

Sigrún, Atli, Ágúst og Axel.
03. janúar 2007 klukkan 04:27
Kæra fjölskylda.
Mikið var leiðinlegt að lesa þessar sorgarfréttir,þegar átti að fara kíkja á jólin hjá litla prins.Ég sendi ykkur innilegar samúðarkveðjur. Við höfum nú haft hana Emmu litlu hjá okkur í rúman mánuð og annan eins gleðigjafa höfum við varla kynnst þannig að ég get trúað að sorgin og söknuðurinn sé mikill.Guð blessi litla skinnið.
Kær kveðja,Kolbrún og fjölskylda.
03. janúar 2007 klukkan 06:30
Fríða, Jói og Þórdís
 
Innilegar samúðarkveðjur frá okkur. Litli aðils var svo mikið krútt og góður voffi. Eins og ég sagði við ömmu í gær, maður grét nú yfir litlum páfagaukum þegar maður var yngri, svo það er rétt hægt að ímynda sér hvernig er að missa hund sem hægt er að tala við og leika við og gefur mikið af sér til baka.
Hafið það sem allra best. Sjáumst á þrettándanum.
03. janúar 2007 klukkan 18:34
Það eru miklar sorgarfréttir að heyra að Aðils þessi fjörkálfur sé dáinn og erfitt að setja sig í þau spor sem þið eruð í núna.
Einnig fengu við þær fréttir í dag að Mamma hans Mola okkar hún Tína Dögg dó í dag eftir stutt veikindi.
Innilegar samúðarkveðjur sendum við ykkur.

Kærar kveðjur Moli , María og fjölsk.
04. janúar 2007 klukkan 00:27
Sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur kveðja Palli Hildur Edda Sif og Palli Litli !
04. janúar 2007 klukkan 17:58
Sunna Sól
 
okkar dýpstu samúðarkveðjur Sunna Sól (hálf systir) og fjölskylda
05. janúar 2007 klukkan 01:58
Kristín E. Björnsdóttir
 
Elsku María, Palli og fjölskylda,

Mikið þótti mér leitt að heyra að litli gleðigjafinn ykkar, hann Aðils, væri dáinn.
Ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Ég mun passa Nökkva minn, sem er að verða 6 mánaða gamall um helgina, sérstaklega vel í framtíðinni í tengslum við það sem hann er að naga.

Kær kveðja,
Kristín
05. janúar 2007 klukkan 06:09
Elsku Maja og fjölskylda
Sendi mínar innilegustu samúð til ykkar. Þó ég hafi ekki hitt hann Aðils nema einu sinni þá bræddi hann mitt hjarta og ég hef fylgst reglulega með hans alltof stuttu ævi hér á síðunni.

Kveðja
Bylgja
05. janúar 2007 klukkan 15:48
Gulla
 
Elsku Maja mín og fjölskylda
Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra, þetta er agalega sorglegt að hann skyldi fara
svona fljótt. Hann var svo ósköp sætur og gaman að fylgjast með honum á síðunni.
Kossar og knús til ykkar allra.

Bestu kveðjur
Gulla
05. janúar 2007 klukkan 22:03
Kæra fjölskylda við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur

Kveðja Gosi og fjölskylda
06. janúar 2007 klukkan 23:47
Við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur frá Hafnarfirði. Við kíktum reglulega á síðuna ykkar og fylgdumst með vexti og þroska kappans. Það er ótrúlegt hvað svona litlir hnoðrar eru miklir gleðigjafar.
Guðrún Lilja og fjölskylda
08. janúar 2007 klukkan 18:41
Dj Johnny
 
Innilegar samúðarkveðjur.
08. janúar 2007 klukkan 22:02
inga
 
en léstu samt ekki kryfja hann, því að þegar hann rocco minn dó úr lifrabólgu, þá varð hann mjög veikur alveg strax og dó nákvæmlega sólarhring eftir að hann varð veikur, og hann fékk engann hita að ráði, sá hiti sem hann fékk gat alveg talist eðlilegur, og hann dó þegar við keirðum inná bílastæðið á dýralæknastofunni.
11. janúar 2007 klukkan 04:57
Innilegar samúðarkveðjur! Það var mikið sjokk að kíkja inn á síðuna og lesa þessar fréttir af elsku litla Aðils sætasta! Hann var greinilega yndislegur hundur, af myndum og fréttum að dæma. Sammhryggjumst ykkur alveg endalaust mikil, þetta er óbyggilega eitt það versta sem hægt er að ganga í gegnum. Það hefur vantað einn ofur-sætastan hvolp upp til himna.
Sorgarkveðjur, fjölskylda Errós og Erró sjálfur
12. janúar 2007 klukkan 01:02
Innilegar samúðarkveðjur, við kíktum oft á síðuna ykkar og fylgdumst með Aðils litla.
Kveðja,
Pálína, Hamlet og Ófelía.
12. janúar 2007 klukkan 16:22
Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra.
15. janúar 2007 klukkan 05:10
Sendum ykkur Innilegar samúðarkveðjur.
15. janúar 2007 klukkan 22:03
Birna
 
Æ,æ,æ hvað þetta er sorglegt. Ég hrópaði bara upp yfir mig þegar
ég las þetta í dagblaðinu áðan.
Innilegar samúðarkveðjur.
Bidda, Hvoli
16. janúar 2007 klukkan 02:18
Askur
 
Innilegar samúðarkveðjur til ykkar, mikið er þetta sorglegt með hann bróðir minn.
17. janúar 2007 klukkan 16:52
Þetta er hræðilegt að heyra! Við höfum fylgst með síðunni hans Aðils síðan við fundum hana og trúðum þessu varla þegar við sáum þetta. Innilegustu samúðarkveðjur frá okkur öllum, megi Guð senda ykkur styrk, hlýju og yl á þessum erfiðu stundum :'(
17. janúar 2007 klukkan 20:21
Samhryggjumst innilega með Aðils litla, virkilega sorglegar fréttir :(
19. janúar 2007 klukkan 20:53

Skrifa athugasemd