Næ ég prófinu á morgun?
01. október 2006 klukkan 17:49
Ég er hreint ekki viss um að ég nái prófinu á morgun. Er þó að æfa mig að sitja....
....og að liggja......
Er þetta nógu gott spyr ég?
Ég verð að segja að ég er ekki sannfærður.
Hinir hundarnir eru miklu duglegri að gera það sem til er ætlast.

Vonum það besta, krossið loppur.
Hvernig sem allt fer á morgun þakka ég kennurunum mínum frábæru frá HRFÍ og samnemendum kærlega fyrir samveruna. Nú ef ég fell og þarf að koma aftur þá er það bara gaman því þá verð ég loksins duglegastur í hópnum.
María A.